Snilldarlausnir 2011

Snilldarlausnir Marel er hugmyndasamkeppni sem gengur út á það að gera sem mest virði úr einum ákveðnum einföldum hlut. Árið 2009 var hluturinn herðatré, árið 2010 var það pappakassi en í ár er það dós sem leikur aðalhlutverkið. Skiptir engu hvers konar dós um er að ræða, rafmagnsdós, skyrdós, kókdós, niðursuðudós eða hvaða dós sem er!

Þetta aukna „virði“ eiga þátttakendur að taka upp á myndband, ekki lengra en 3 mínútur og senda inn í keppnina.

Allir framhaldsskólanemendur á landinu mega taka þátt og það er ekkert hámark á fjölda myndbanda.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum en þau eru:

Snilldarlausnin 2011: 100.000 kr.
Flottasta myndbandið: 50.000 kr.
Frumlegasta hugmyndin: 50.000 kr.

Auk þess veita Samtök atvinnulífsins sérstaka viðurkenningu og verðlaun:
Líklegast til framleiðslu: 50.000 kr. 

Skilafrestur er til og með mánudeginum 24. október. Tillögum er skilað með því að hlaða þeim á youtube og senda hlekkinn (link) á snilldarlausnir@innovit.is eða með því að senda póst til Innovit, Dunhaga 5, 107 Reykjavík.

Keppnin er haldin af Innovit, nýsköpunar og frumkvöðlasetri en bakhjarl keppninnar er Marel en auk þess styðja Samtök atvinnulífsins og Mennta- og menningarmálaráðuneytið við keppnina með myndarlegum hætti.