Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti í dag sigurvegurum Snilldarlausna Marel 2011 verðlaun við hátíðlega athöfn. Verðlaun voru veitt í eftirtöldum fjórum flokkum:
Náttborð - Guðmundur Hermann Salbergsson, Sigurður Jón Sigmundsson, Jón Gunnar Sæmunsson, Haukur Örn Harðarsson, nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja áttu hugmyndina. Hlutu þeir verðlaun að upphæð 100.000 kr. Myndbandið þeirra má sjá hér.
Þakrennuviðgerð - Rebekka Jenný Reynisdóttir nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík átti hugmyndina og hlaut að launum 50.000 kr. Myndbandið hennar má sjá hér.
Dósastrengur - Árni Steinn Viggósson og Haukur Kristinsson nemendur í Verzlunarskóla Íslands eiga hugmyndina og hljóta 50.000 kr. að launum. Myndbandið þeirra má sjá hér.
Hleðslutækjahaldari - Agnes Eva Þórarinsdóttir, Harpa Lind Konráðsdóttir, Kolbrún Helga Hansen, Sigrún Helga Andrésdóttir og Steinar Eyþór Valsson nemendur í Menntaskólanum á Akureyri eiga hugmyndina og hljóta að launum sérstaka viðurkenningu Samtaka atvinnulífsins og verðlaun að upphæð 50.000 kr. Myndbandið þeirra má sjá hér.
Aðstandendur Snilldarlausna Marel óska sigurvegurum innilega til hamingju!

