26.10.2011
Skilafrestur liðinn Frestur til að skila inn tillögum í Snilldarlausnir Marel 2011 er liðinn. Fjöldi tillagna barst hvaðanæva af landinu og þakka aðstandendur Snilldarlausna Marel þeim framhaldsskólanemum sem sendu inn tillögur kærlega fyrir það.
Nú bíður dómnefndar vandasamt verk við að meta allar þessar tillögur en samtals eru þær tæpir tveir klukkutímar af efni.
Úrslit og verðlaunaafhending mun fara fram í byrjun nóvember en nánar verður tilkynnt um það þegar nær dregur.

