03.10.2011
Dós er hlutur ársins!

Ari Páll Ísberg nemand í Verzlunarskóla Íslands og meðlimur í framkvæmdastjórn Snilldarlausna Marel og Stefán Þór Helgason framkvæmdastjóri keppninnar afhjúpuðu hlut ársins í Bítinu á Bylgjunni nú í morgun en hlutur ársins að þessu sinni er dós. Heyra má spjall þeirra félaga við þau Heimi og Kollu hér.

Þátttakendur mega nota hvaða dós sem er (t.d. niðursuðudós, kókdós, ramagnsdós, skyrdós) og eins margar og þeir vilja. Eins má nota aðra hluti eða efni til aðstoðar en þó er það dósin sem verður að leika aðalhlutverkið í myndbandinu sem þátttakendur taka upp. Aukið verðmæti dósarinnar er það sem telur.

Taka skal verðmætið eða nýju virkni dósarinnar upp á myndband og skila inn í keppnina.

Verðlaun verða veitt í eftirfarandi þremur flokkum:

Snilldarlausnin 2011: 100.000 kr.
Flottasta myndbandið: 50.000 kr.
Frumlegasta hugmyndin: 50.000 kr. 

Framkvæmdastjórn og umsjónarmenn Snilldarlausna Marel óska þátttakendum góðs gengis!