Snilldarlausnir Marel lokið – Menntamálaráðherra afhenti verðlaun

Einn af megin viðburðum Athafnaviku, Snilldarlausnir Marels 2009,  er nú lokið. Nemendur á framhaldsskólastigi áttu að nota hugmyndaflugið til að auka virði herðatrés, taka hugmyndina upp og senda inn í keppnina. Katrín Jakobsdóttir tók á móti siguvegurum fyrr í dag og afhenti verðlaun fyrir bestu hugmyndina, frumlegustu hugmyndina og besta myndbandið.

Verðlaun fyrir bestu hugmyndina hlaut  Valdís Steinarsdóttir frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, en henni tókst að búa til gítarstand með herðartré að vopni. Fyrir vikið hlýtur hún 100.000 krónur í verðlaun.

Verðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina hlutu Elís Rafn Björnsson og Ari Páll Ísberg frá Verzlunarskóla Íslands. Þeir kynntu hvernig hægt væri að nota herðatré til að hjálpa til við endurvinnsluna heima fyrir. Þeir fá í verðlaun 25.000 krónur og pung frá Nova.

Verðlaun fyrir besta myndbandið hlaut Kristinn Pálsson frá Verzlunarskóla Íslands. Hann kynnti nýja leið til að hengja upp fataflíkur á herðartrjám án þess að þurfa stöng til að hengja upp á. Í verðlaun fær hann 25.000 krónur og pung frá Nova.

Besta hugmyndin:

Frumlegasta hugmyndin:

Flottasta myndbandið:


Snilldarlausnir er hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna sem er nú haldin í fyrsta sinn og er hluti af Alþjóðlegri athafnaviku. Keppnin gengur út á að þátttakendur fá ákveðinn einfaldan hlut sem þeir eiga að skapa sem mest virði úr. Virðið getur verið félagslegt, fjárhagslegt, tilfinningalegt, skemmtilegt, umhverfisvænt eða í raun hvað sem er.

Snilldarhluturinn árið 2009 er: Herðatré!

Nýttu hugmyndaflugið, sýndu hvað í þér býr og skapaðu mestu Snilldina!